Austurland 20. - 22. júní
Austurland 20. - 22. júní með ferðaskrifstofunni TANNI TRAVEL.
Gist verður á Hótel Hallormsstað - Verð á mann í tveggja manna herbergi kr. 175.000.
Laugardagurinn 20. júní.
Dagskráin hefst snemma með mætingu á Reykjavíkurflugvöll kl. 07:45 og flugi til Egilsstaða kl. 08:30.
Þaðan liggur leiðin til Borgarfjarðar eystri, þar sem við heimsækjum Hafnarhólma – eitt allra besta lundasvæði landsins með frábæru aðgengi. Við kíkjum einnig á Álfaborgina og kirkjuna áður en við snæðum ljúfa hádegissúpu í Álfakaffi. Borgarfjörður er þekktur fyrir stórbrotna náttúrufegurð og við gefum okkur góðan tíma til að njóta hennar.
Á heimleið er þeim sem vilja boðið að slaka á í náttúrulaugunum í Vök áður en hópurinn sameinast á Hallormsstað. Innritun er um kl. 15:30 og kvöldið endar á notalegu hlaðborði á hótelinu.
Sunnudagurinn 21. júní.
Dagurinn hefst á morgunverði áður en lagt er af stað yfir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar, sem iðar af menningu, listum og lífi. Þar gefst tími til að rölta um bæinn, taka myndir, skoða verslanir og njóta hádegissúpu. Að því loknu liggur leiðin í Mjóafjörð, þar sem fossar og fjöll setja ógleymanlegan svip á ferðina – sérstaklega hinir tignarlegu Klifbrekkufossar.
Dagurinn hefst á morgunverði áður en lagt er af stað yfir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar, sem iðar af menningu, listum og lífi. Þar gefst tími til að rölta um bæinn, taka myndir, skoða verslanir og njóta hádegissúpu. Að því loknu liggur leiðin í Mjóafjörð, þar sem fossar og fjöll setja ógleymanlegan svip á ferðina – sérstaklega hinir tignarlegu Klifbrekkufossar.
Á Sólbrekku er hægt að fá sér kaffisopa og njóta rólegrar stemningar Brekkuþorps.
Á heimleið er stutt stopp á Egilsstöðum áður en dagurinn endar á notalegu hlaðborði á hótelinu í Hallormsstaðarskógi.
Mánudagurinn 22. júní.
Dagurinn hefst með fallegri akstursleið um Velli og Skriðdal áður en komið er yfir Breiðdalsheiði til hinnar snotru Breiðdalsvíkur. Þaðan er haldið til Stöðvarfjarðar þar sem Steinasafn Petru býður upp á litadýrð og náttúruundur. Hádegisverður er snæddur á Fosshóteli á Fáskrúðsfirði og að honum loknum er Franska safnið skoðað.
Leiðin liggur áfram til Neskaupstaðar með myndastoppi í Hólmanesi, þar sem náttúran er í aðalhlutverki. Í Neskaupstað gefst tækifæri til að sjá áhrifamikla snjóflóðavarnargarða áður en snæddur er snemmbúinn kvöldverður í sjarmerandi Randulffssjóhúsi. Að lokum er ekið til Egilsstaða og flogið til Reykjavíkur um kvöldið.
Ath. takmarkaður fjöldi til af eins manns herbergjum.
Innifalið í verði:
- Flug, Reykjavík-Egilsstaðir-Reykjavík.
- 3 daga ferð skv. lýsingu með leiðsögn.
- Gisting á Hótel Hallormsstað í tvær nætur með morgunverði.
- 2x hlaðborð á hóteli.
- 1x 2ja rétta kvöldverður í Randulffssjóhúsi
- 3x hádegisverðir
- Aðgangseyrir í Steinasafn Petru og Franska safnið.
- Aðgangseyrir í Vök-baths.
- Aðgangseyrir í SPA á Hótel Hallormsstað.
- Drykkir og annað tilfallandi
