Tilkynning vegna skráninga í ferðir 2026

Kæru félagar

Það hefur verið líf og fjör í skráningunni í Fjallabaksferðina! Þar sem við erum ekki með formlegt bókunarkerfi fylltist ferðin hratt og því komust færri að en vildu. Sætum er úthlutað eftir tímasetningu tölvupósta, og í lok vikunnar fá allir svar:
  • Þau sem komast með fá tölvubréf með upplýsingum um greiðslu óafturkræfs skráningargjalds (8.000 kr.)
  • Aðrir fá bréf sem hefst á orðunum „Því miður…“ og fara á biðlista í tímaröð skráninga

Austfjarðaferðin – laus sæti!

Skráning í Austfjarðaferðina gekk ekki sem skyldi vegna rangrar slóðar í skráningarformi. Við biðjumst velvirðingar á því og þökkum öllum sem bentu okkur á mistökin.

Góðu fréttirnar eru að mörg sæti eru enn laus, svo nú er kjörið tækifæri til að tryggja sér ferð um hið fagra Austurland:  https://www.tannitravel.is/fke2026

Fljótshlíðarferð – enn laus sæti

Í dagsferðina um Fljótshlíðina eru enn nokkur sæti laus, en við reiknum með að hún fyllist líka innan skamms.

Stokkhólmsferð – síðustu sætin!

Um hádegi 20. janúar voru 7 sæti laus í Stokkhólmsferðina, sem er sérferð hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara. Félagar og makar í FKE nota skráningarorðið sem hefur verið sent á skráða meðlimi félagsins í pósti.

Þau sem hafa áhuga ættu að bregðast hratt við – þessi ferð fyllist líklega fljótt.

Göngugarparnir – nýjar upplýsingar á heimasíðunni

Upplýsingar um mánudagsgöngur Göngugarpanna birtast nú á viðburðadagatali á heimasíðu félagsins. Yfirleitt ættuð þið að geta séð upplýsingar um næstu göngu á laugardegi eða sunnudegi.

Göngurnar eru einnig auglýstar á Facebook-síðunni okkar: Félag kennara á eftirlaunum (FKE). Ef þið eruð ekki í hópnum, biðjið einhvern sem þið þekkið að bæta ykkur inn.

Eins verður póstur sendur á þá félagsmenn sem þess óska og hafa skráð sig á póstlista Göngugarpanna, en skráningareyðublað er á heimasíðu félagsins á slóðinni https://fke.is/gonguhopur-fke

Næsta samkoma – laugardaginn 7. febrúar

Við hittumst í Áskirkju laugardaginn 7. febrúar. Dagskráin verður létt og skemmtileg:
  • Félagsvist
  • Stutt dagskrá eða tónlistaratriði
  • Kaffi og meðlæti
  • Og það mikilvægasta: að hittast, spjalla og njóta samverunnar
Nánari upplýsingar verða auglýstar síðar.
Leit