Fjallabak syðra 18. ágúst
Ævintýraferð inn á öræfin með MIDGARD ADVENTURE á Hvolsvelli
Verð á mann 35.000 kr.
Takmarkaður sætafjöldi. Einungis 25 sæti í boði
Ferðin hefst með brottför frá Kennaraháskólanum við Stakkahlíð kl. 8, og þaðan liggur leiðin inn í töfrandi heim Fjallabaks. Svæðið heillar með litríkum fjöllum, svörtum sandauðnum, hraunmyndunum og viðkvæmu vistkerfi sem gerir þessa eyðimörk einstaka. Farið er á fjallabílum með reyndum leiðsögumönnum og ferðinni hagað eftir veðri og aðstæðum.

Dagurinn býður upp á stórbrotna náttúru: græn fjöll, jökla, gljúfur og hraunbreiður. Ef aðstæður leyfa verður ekið að Mælifelli og inn í Rauðubotna, þar sem grænt vatn og rautt grjót mynda ógleymanlega sjón. Leiðin liggur áfram um Skaftártungur, Álftavatn, Hvanngil og framhjá Hattfelli og Laufafelli. Við förum einnig meðfram voldugu Markarfljótsgljúfri og mögulega að Torfahlaupi og Einhyrningi, sem minnir á sofandi dýr.
Að loknum ævintýraríkum degi bíður hægeldaður lambaskanki og eftirréttur á Midgard Restaurant á Hvolsvelli, ásamt notalegri gítartónlist. Um kl. 21 er haldið heim og áætluð heimkoma til Reykjavíkur er kl. 23.
Innifalið: ferð, leiðsögn, hádegispylsur og kvöldverður.
Athugið að fullbókað er í ferðina. Nýskráningar fara á biðlista.
Skráning
Vinsamlegast fylltu út eyðublaðið hér neðar til að skrá þig. Athugaðu að til að skrá ferðafelaga eða maka þarf að haka í 'Skrá ferðafélaga'.