Fréttir og viðburðir

Vetrarstarf FKE 2025

Vetrarstarf FKE 2025

Ágætu félagar.

Þá er haustið 2025 komið og vetrarstarf FKE hefst innan tíðar. Þessi póstur er stuttur, eiginlega bara skeyti til að láta að vita að stjórnin sem kosin var á síðasta aðalfundi sé tekin til starfa.

Við höfum velt vöngum um starfið og sennilega verður það með hefðbundnu sniði til áramóta með samveru í félagsvist eða annarri dægradvöl og kaffi, jólafundi, kannski fræðslufundi og gönguferðum. Hver atburður verður auglýstur þegar nær dregur honum.

Ferðir sumarsins tókust allar mjög vel og almenn ánægja er með þær. Við sýnum kannski myndir úr því starfi í samverustundum okkar.

Ferðir næsta árs eru í undirbúningi og verða auglýstar vandlega síðar. Ferð til Flórens þurfti að auglýsa s.l. vor og seldist hún upp á tveim dögum og biðlisti er eftir sætum sem kynnu að losna.EKKÓ - kórinn hefur hafið vetrarstarfið. Æft er í Áskirkju á mánudögum kl. 11:00 - 12:45. Hefurðu ekki gaman af því að syngja? Væri ekki tilvalið að mæta á næstu æfingu? Stjórnandi kórsins er Bjartur Logi Guðnason organisti í Áskirkju​​.

Gönguhópur

Nokkrir göngugarpar úr hópi eftirlaunakennara hittast reglulega undir stjórn Skarphéðins Guðmundssonar en það er nóg pláss fyrir fleiri.

Næsta ganga verður e.t.v. gengin þegar þið fáið þennan póst en fólk mætir á bílastæðið við Vífilsstaðavatn mánudaginn 22.sept. kl. 13.00​ og gengur kringum vatnið og fær sér svo kaffi og spjallar á eftir í Golfskálanum í Garðabæ. Við látum svo vita af næstu göngum​​.

Félagsvist og kaffi​​ 

Félagsvist og kaffi hefur einkennt starf okkar undanfarin ár. Við byrjum á hefðbundinn hátt með félagsvist en þar með er ekki sagt að það verði alltaf svo. Við höfum valið okkur nýjan fundarstað. Við yfirgefum Grand hótel og færum okkur yfir í ​ÁSKIRKJU við Vesturbrún.

Við höfum ákveðið að lækka aðgangseyrinn niður í 2.500​ krónur vegna ódýrara húsnæðis en jafnframt drögum við eitthvað úr veitingunum með kaffinu.Félagsvist FKE verður í ÁSKIRKJU verður laugardaginn 4. október kl. 13:30​ en salurinn verður opnaður kl 13:00.

Við verðum í neðri salnum - DAL - ​​ undir kirkjuskipinu en gengið er inn að austanverðu á kirkjunni. Bílastæði eru við Vesturbrún móts við kirkjuna og einnig niðri við innganginn í salinn, sjá mynd.

Fyrirspurn barst frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar hvort FKE væri tilbúið að stíga inn í sjálfboðastarf ​með Velferðarsjóði barna í kringum stuðning við heimanám barna. Þetta starf var á vegum Rauða krossins t.d. í Gerðubergi og í menningarmiðstöðvum eða bókasöfnum en ekki lengur. 

Stjórn FKE telur að þetta snúi frekar að einstökum félagsmönnum sem kynnu að hafa áhuga á svona starfi og sendir væntanlega út nánari upplýsingar um þetta fljótlega.

Með kveðju frá stjórn FKE
Ragnar, Sesselja, Helgi, Björg, Skarphéðinn, Kristín og Svava.

Engin ummæli enn
Leit