Fréttir og viðburðir

Þjónustusamningur undirritaður

Þjónustusamningur undirritaður

28.08.2024 adrar-frettir

Félag kennara á eftirlaunum hefur nýverið gert þjónustusamning við Snædal ehf. varðandi nokkra þætti sem snúa að upplýsingamiðlun félagsins. Undir samninginn falla meðal annars:

  • Utanumhald og uppfærslur á heimasíðu félagsins, útlit, virkni og efnistök.
  • Utanumhald póstlista og félagatals félagsins.
  • Uppsetning og dreifing rafræns fréttabréfs.
  • Önnur viðfangsefni sem tengjast rafrænum lausnum og tekin eru fram í þjónustusamningi.

Samningurinn gildir í tvö ár, með endurskoðunarákvæði á þriggja mánaða fresti. Samningurinn er uppsegjanlegur með þriggja mánaða fyrirvara á báða bóga.

Stjórn félagsins hefur nú þegar góða reynslu af samstarfi við starfsfólk Snædal, meðal annars við vinnu við núverandi heimasíðu félagsins. Við lítum samstarfið björtum augum og væntum þess að félagsmenn FKE njóti góðs af.

Engin ummæli enn
Leit