Fréttir og viðburðir

EKKÓ kórinn flutti jólalögin
Okkar öflugi EKKÓ kór kom sterkur og vel æfður inn í desembermánuð með jólalagadagskrá sem kórinn flutti í fjögur skipti við góðar viðtökur. Á fjölmennum Aðventufundi FKE í Áskirkju söng kórinn líkt og fyrri ár.
Stjórnandi kórsins, allt frá árinu 2011 er Bjartur Logi Guðnason. Hann passar vel upp á að allir kórfélagar haldi söng gleðinni og gerir það listavel.
Tveimur dögum fyrir Aðventufundinn í Áskirkju söng kórinn á jólatónleikum í Langholtskirkju ásamt þremur öðrum kórum. Þarna var húsfyllir og almennt álit áheyrenda að tónleikarnir hefðu veitt "gleði og gaman". EKKÓ kórinn heimsótti loks hjúkrunarheimilin Hrafnistu í Boðaþingi og Mörk sem er eitt af Grundarheimilunum. Fallegu jólalögin og samsöngur viðstaddra fylltu gesti jólagleði og þakklæti.
EKKÓ kórinn hefur starfað allt frá árinu 1996 og í vetur hefur kórstarfið verið blómlegt og ánægjulegt. Kórinn hefur æfingaaðstöðu í Áskirkju og æfingar eru alla mánudaga á neðri hæð kirkjunnar frá kl. 11:00 - 12:30.
