Fréttir og viðburðir

 Í upphafi nýs árs 2026

Í upphafi nýs árs 2026

09.01.2026 2026 ferdir

Gleðlilegt nýtt ár ágætu félagar í FKE og þakkir fyrir það liðna.​

Í þessum pósti og á heimasíðu okkar kynnum við þær ferðir sem FKE hefur látið skipuleggja fyrir félagsmenn og maka þeirra. Við hvetjum ykkur til að skoða ferðirnar vel.

Skráning í ferðirnar hefst föstudagsmorguninn 16. janúar gegnum skráningarglugga eða slóð fyrir hverja ferð en EKKI með tölvupósti til félagsins.

Fljótlega þarf að greiða uppgefin óafturkræf staðfestingagjöld.

Allar ferðirnar eru skipulagðar af ferðaskrifstofum en FKE sér um innheimtu í dagsferðirnar. FKE niðurgreiðir ferðirnar að hluta og niðurgreiðslan er komin inn í uppgefið verð.

​Ferðir sumarsins 2026:​

  1. Öll sæti í vorferðina til FLÓRENS 8. - 13. maí seldust upp á tveimur dögum s.l. haust.​
  2. FLJÓTSHLÍÐIN:   Dagsferð 15. júní​
  3. AUSTURLAND  20. - 22. júní - flug fram og til baka.​
  4. FJALLABAK SYÐRA – ÖRÆFAFERÐ:  Dagsferð 18. ágúst​
  5. STOKKHÓLMUR 1.- 5. September.​

ATH.: Í ferðum FKE er alltaf nokkur gangur. Því er mikilvægt að fólk sé vel göngufært og sjálfbjarga. ​

Fljótshlíðin mín fríða

Verð á mann kr. 25.000 

Þetta er 10 klukkustunda ferð í umsjá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónasso ar og með leiðsögn Ísólfs Gylfa Pálmasonar um Fljótshlíðina.

Brottför úr Reykjavík kl. 8:15 frá Kennaraháskólanum við Stakkahlíð mánudaginn 15. júní.

Hellarnir við Hellu verða skoðaðir með leiðsögn og svo ekið í tveggja rétta hádegisverð að Hellishólum.

Þá verður farið um Fljótshlíðina og staldrað við á nokkrum stöðum s.s. í Tumastaðaskógi, við Gluggafoss, Þorsteinslund og Dímon.

Heimkoma til Reykjavíkur er áætluð kl 18:15.

Innifalið í verði er ferð, leiðsögn, hellaskoðun og hádegisverður.

Austfirðir 20. - 22. júní með ferðaskrifstofunni TANNI TRAVEL.

Gist verður á Hótel Hallormsstað - Verð á mann í tveggja mannaherbergi kr. 175.000

Laugardagurinn 20. júní.

Mæting á Reykjavíkurflugvöll kl. 07:45 að morgni. Flogið frá Reykjavík kl. 08:30, lending á Egilsstöðum kl. 09:30.

Ekið til Borgarfjarðar þar sem Hafnarhólmi er heimsóttur. Þar er búið að koma upp skemmtilegu aðgengi til að heimsækja lundann og líklega einn besti staður til þess á landinu. Skoðum Álfaborgina og heimsækjum kirkjuna. Við borðum hádegissúpu í Álfakaffi. Borgarfjörður er rómaður fyrir náttúrufegurð og við tökum okkur tíma í að njóta.

Kvöldverður á hóteli. Hér er hægt að bjóða þeim sem vilja að fara í böðin í Vök að verða eftir á leið okkar heim frá Borgarfirði. Þeir hinir sömu yrðu sóttir fyrir kvöldmat. www.vok-baths.is

Tékkað inn á hótel á Hallormsstað ca. kl. 15:30.

Boðið upp á hlaðborð á hótelinu um kvöldið.

Sunnudagurinn 21. júní.

Eftir að hafa borðað morgunverð er ekið yfir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar sem er vinsæll ferðamannastaður og iðar af lífi og menningu. Þar er gaman að ganga um, taka myndir og kíkja í verslanir. Frjáls tími og hádegissúpa. Eftir það, er ekið í Mjóafjörð. Aksturinn til og frá Mjóafirði er afar stórbrotinn, fögur en krefjandi leið og fossarnir leika við hvern sinn fingur, ekki síst Klifbrekkufossar sem eru vinsælt augnakonfekt. Á Sólbrekku er hægt að kaupa sér kaffisopa og njóta Brekkuþorps.

Á leiðinni til baka á hótelið í skóginum tökum við stutt ferðamannastopp á Egilsstöðum. Hlaðborð á hóteli um kvöldið.

Mánudagurinn 22. júní.

Ekið um Velli og Skriðdal yfir Breiðdalsheiði til Breiðdalsvíkur. Lítill sætur bær sem gaman er að heimsækja. Ekið til Stöðvarfjarðar þar sem Steinasafn Petru er heimsótt.

Hádegisverður borðaður á Fáskrúðsfirði á Fosshóteli og Franska safnið skoðað.

Við keyrum til Neskaupstaðar í gegnum Reyðarfjörð og tökum myndastopp í Hólmanesi, friðlandi og fólkvangi. Í Neskaupstað skoðum við þau mikilfengleg mannvirki sem snjóflóðavarnargarðarnir eru.

Snemmbúinn kvöldverður borðaður á Randulffssjóhúsi, fallegu uppgerðu sjóhúsi byggðu af Peter Randulff, áður en haldið er til Egilsstaða í flug.

Mæting á flugvöll kl. 19:00, flogið frá Egilsstöðum kl. 19:45. Lent í Reykjavík kl. 20:50.

Þau sem ekki ferðast með ferðafélaga, þurfa að greiða fyrir eins manns herbergi.

Ath. takmarkaður fjöldi til af eins manns herbergjum.

Innifalið í verði:

  • Flug, Reykjavík-Egilsstaðir-Reykjavík.
  • 3 daga ferð skv. lýsingu með leiðsögn.
  • Gisting á Hótel Hallormsstað í tvær nætur með morgunverði.
  • 2x hlaðborð á hóteli.
  • 1x 2ja rétta kvöldverður í Randulffssjóhúsi
  • 3x hádegisverðir
  • Aðgangseyrir í Steinasafn Petru og Franska safnið.

Ekki innifalið í verði:

  • Aðgangseyrir í Vök-baths.
  • Aðgangseyrir í SPA á Hótel Hallormsstað.
  • Drykkir og annað tilfallandi

Fjallabak syðra - Ævintýraferð inn á öræfin 18. ágúst með MIDGARD ADVENTURE á Hvolsvelli

Verð á mann kr. 35.000

Hópurinn verður sóttur til Reykjavíkur að Kennaraháskólanum við Stakkahlíð kl 8.

Fjallabak er heillandi með litadýrð sinni, ótrúlegum hraunmyndunum, einstöku og viðkvæmu vistkerfi í þessari kyrrð sem þessi eyðimörk býður upp á. Ferðinni verður hagað í takt við veður og færð og við verðum á nokkrum fjallabílum með leiðsögumann í hverjum bíl.

Dagurinn mun einkennast af grænum fjöllum umvafin svartri eyðimörkinni, jökli svo langt sem augað eygir, voldugum gljúfrumr og hraunbreiðum. Vonandi komumst við að Mælifelli og inn í Rauðubotna sem er ævagamall gígur sem heldur utan um undarlega grænt vatn, umvafið rauðu grjóti. Þaðan munum við fara niður í Skaftártungur. Við munum keyra að Álftavatni, sem er þekkt fyrir ríkulegt fuglalíf, um Hvanngil, framhjá Hattfelli og Laufafelli. Við munum einnig keyra fram hjá Markarfljótsgljúfri sem er voldugt gljúfur þar sem auðvelt er að sjá jarðlögin í gljúfurveggjunum. Torfahlaup gæti orðið einn af okkar viðkomustöðum sem er upphafið af Markarfljótsgljúfri, Einhyrningur sem okkur finnst líta út eins og sofandi einhyrningur.

Í lok dags munum við snæða hægeldaða lambaskanka á Midgard Restaurant á Hvolsvelli ásamt okkar eftirlætis eftirrétti. Eftir matinn munum við hlusta á ljúfa tóna gítarsins og slaka á eftir ævintýri dagsins.

Upp úr kl 21 munum við leggja af stað heim á leið og er áætluð heimkoma til Reykjavíkur kl 23

Innifalið: Ferð, leiðsögn, grillaðar pylsur um hádegisbil og kvöldverður.

Stokkhólmur - Ferð með Þórhalli Heimissyni​ 1. – 5. september

Verð á mann í tveggja manna herbergi kr. 230.000

Þriðjudagurinn 1. september

Flogið með flugi FI306 frá Keflavík kl. 07:35 og lent á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi kl. 12:45 að staðartíma. Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins þar sem Þórhallur Heimisson fararstjóri tekur á móti hópnum og ekur með í rútu á Sheraton hótelið þar sem dvalið verður í 4 nætur. Komið á hótelið um miðjan dag þar sem innritun fer fram. Frjáls dagskrá fram að kvöldmat sem hefst kl. 19:00 á hótelinu.

Miðvikudagurinn 2. september

Lagt af stað kl. 10:00 í 3ja klst. skoðunarferð um borgina með rútu þar sem fararstjóri mun fræða farþega um það sem fyrir augu ber. Frjáls dagur að skoðunarferð lokinni. Sameiginlegur kvöldverður er á hótelinu kl. 19:00.

Fimmtudagurinn 3. september

Farið í 2ja klst. siglingu kl. 11:00 með bát sem leggur frá höfn skammt frá hótelinu þar sem fararstjóri mun segja frá staðháttum, áhugaverðum stöðum og byggingum sem prýða borgina. Eftir siglinguna mun fararstjóri ganga með hópinn frá bryggju yfir í Gamla Stan (Old Town) þar sem Konungshöllin er staðsett en í þessum gamla hluta borgarinnar er stórkostlegt að upplifa mannlíf, menningu og ýmislegt annað sem gleður augu og eyru, þ.m.t. stóra torgiđ viđ Nóbelshöllina þar sem jólamarkađur er haldinn ár hvert. Einnig er fjöldi góðra veitinga- og kaffihúsa sem gaman er að heimsækja. Frjáls dagskrá fram eftir degi en frá Gamla Stan er stutt að ganga yfir brúna að Sheraton hótelinu. Kvöldverður þar kl. 19:00.

Föstudagurinn 4. september

Lagt af stað með rútu kl. 10:00 áleiðis í ABBA safnið við Djurgården en safnið opnaði árið 2013 og er algjörlega ómissandi að heimsækja. Þar upplifa ferðalangar alvöru ABBA-stemningu og geta rifjað upp sögu þessarar stórbrotnu hljómsveitar. Hægt verður að kaupa sér hádegisverð á veitingastað við hlið safnsins (ekki innifalið í verði ferðarinnar) en laust eftir hádegi gengur fararstjóri með hópinn nokkur hundruð metra að Vasa safninu þar sem er ađ finna Vasa skipiđ sem sökk við Stokkhólm í jómfrúarferð sinni árið 1628. Rúta sækir mannskapinn um miðjan dag og ekur að hóteli. Kvöldverður þar kl. 19:00.

Laugardagurinn 5. september

Heimferðardagur. Lagt af stað með rútu kl. 11:00 og ekið á Arlanda flugvöll þaðan sem brottför er með flugi FI307 kl. 13:45. Lent er í Keflavík kl. 15:05 að staðartíma.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka. Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Innifalið í ferðinni er:

  • Flug Icelandair til Stokkhólms fram og til baka – allir skattar og gjöld.
  • Gisting í 4 nætur á Sheraton Stockholm 4* með morgunverði.
  • 2ja rétta kvöldverður á Sheraton öll kvöld (drykkir ekki innifaldir).
  • Skoðunarferð með rútu um borgina ásamt leiðsögumanni.
  • Sigling um skerjagarðinn og gönguferð að Gamla Stan ásamt fararstjóra.
  • Aðgangseyrir að ABBA safni og Vasa safni.
  • Allur rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka og í allar skoðunarferðir skv. lýsingu.
  • Íslensk fararstjórn og leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar.


Aðalheiður Bjö(...)
ritaði
16.01.2026, 10:45
Skráning í ferð Fjallabak syðri
Aðalheiður Bjö(...)
ritaði
16.01.2026, 10:49
Fjallabak syðra:<br />Aðalheiður Björk Vignisdóttir <br />Gunnar Gunnarsson <br />Þuríður Guðmundsdóttir <br />Kristinn Karl Guðmundsson
Ingibjörg Valdim(...)
ritaði
16.01.2026, 11:15
Vona að þetta sé rétt gert hjá mér. kt. okkar eru 1602453879 og 0310423649
Sigurborg Hrōnn (...)
ritaði
20.01.2026, 15:04
Stokkhólmur 1.- 5.sept.
Leit