Fréttir og viðburðir

FKE stóð fyrir ferð í Þórsmörk 14. ágúst 2025.

FKE stóð fyrir ferð í Þórsmörk 14. ágúst 2025.

Í blíðskaparveðri lagði 43 manna hópur af stað í Bása. Básar eru í Goðalandi sunnan megin Krossár en Langidalur er norðan megin Krossár. Allt er þetta í daglegu tali kallað Þórsmörk.

Þegar komið var í Bása tók Svea skálavörður á móti okkur með kynningu á svæðinu og sagði nokkuð frá starfsemi Ferðafélagsins Útivistar.

Í skála Útivistar var boðið upp á súpu og brauð og á eftir var kaffi og kaka ( muffins). Að sjálfsögðu brustu ferðaglaðir eftirlaunakennarar og þeirra makar hressilega í söng og gleði í skálanum við undirleik Sesselju Sigurðardóttur.

Eftir matinn fór Svea með hópinn í góða göngu hringinn í kringum Bólhöfuð. Yndisleg ganga en nokkuð á fótinn. Veður var milt og gott og allir komu glaðir til baka úr göngunni.

Á heimleið var ekið um Fljótshlíðina sem skartaði sínu fegursta og að sjálfsögðu var ýmislegt rifjað upp um sögusvið Njálu.

Til baka var komið kl.19:30 eftir afar vel heppnaða og skemmtilega ferð.

Björg Baldursdóttir var leiðsögumaður í ferðinni en Guðrún Erla Björgvinsdóttir fararstjóri.

Engin ummæli enn
Leit