Fréttir og viðburðir
Fjörutíu og tveir félagar í FKE fóru í lok maí í vel heppnaða sex daga ferð um SV-England.
Ferðin var farin í samstarfi við ferðafélagið Skotgöngu. Ferðin átti nokkuð langan aðdraganda og var vel undirbúin.
Fyrst var komið til Torquay sem er vinsæll ferðamannastaður á ensku Riverunni í Devon. Þar fæddist Agatha Christie, einn mest seldi rithöfundur allra tíma. Þá var farið til Port Isaac á norðurströnd Cornwall og er frægt fyrir aö vera sögusvið vinsælu sjónvarpsþáttanna um Martin lækni sem sýndir voru víða um heim m.a. hér á landi við miklar vinsældir. Heimamaður, einn af leikurum myndanna, leiddi okkur um sögusviðið. Bærinn er þröngur og brattur en ótrúlega sjarmerandi.
Við gengum út í eyjuna ST. Michael‘s Mount sem er þekkt fyrir bókina - Litla bakaríið við Strandgötu eftir Jenny Colgan. Þá var farið til Bath þar sem Jane Austen rithöfundur bjó í upphafi 19. aldar. Bath er þekkt fyrir rómönsku baðhúsin og Georgiskan arkitektúr. Að sjálfsögðu voru baðhúsin skoðuð.
Að síðust var ekið að merkustu steinaldarminjum Bretlandseyja Stonehenge.

