Fréttir og viðburðir

Ásfundur FKE laugardaginn 1. nóvember

Það styttist í næstu samkomu okkar í FKE.​Laugardagnn 1. nóvember verður “ÁSFUNDUR”, ​við hittumst í salnum á neðri hæð ÁSKIRKJU kl. 13:30.

Við breytum aðeins til í þetta sinn, höfum bókarkynningu og lítið BINGÓ á eftir. ​Það verður því ekki spiluð félagsvist að þessu sinni.

Bókakynning

Þórunn Rakel Gylfadóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2021 í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bók sína Akam, ég og Annika. Nú í nóvember kemur út ný bók eftir hana fyrir fullorðna sem heitir Mzungu, spennusaga byggð á sönnum atburðum, og ætlar höfundur að kynna hana fyrir okkur og lesa upp úr henni (sjá:  Bókatíðindi - Mzungu - Þórunn Rakel Gylfadóttir og Simon Okoth Aora )  

Þórunn Rakel Gylfadóttir er fædd í Reykjavík árið 1968   og er uppalin í Hafnarfirði.

Það eru nokkur bílastæði niðri við salinn, keyrt niður við brunahanann austan við kirkjuna. Fjölmörg stæði eru á Vesturbrún móts við Áskirkju.

Við vonumst til að sjá sem flesta í neðri sal Áskirkju laugardaginn 1. nóvember n.k. Við opnum salinn klukkan 13:00 en bókarkynningin hefst svo klukkan 13:30.

Með kveðju frá stjórn FKE 

Ragnar, Sesselja, Helgi, Björg, Skarphéðinn, Kristín og Svava.



Engin ummæli enn
Leit