Fréttir og viðburðir
Laugardaginn 6. desember kl. 13:30 í efri safnaðarsal Áskirkju
Kæra félagsfólk,
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á árlegan aðventufund FKE sem haldinn verður laugardaginn 6. desember kl. 13:30 í efri safnaðarsal ÁSKIRKJU við Vesturbrún.
Dagskráin er fjölbreytt og hátíðleg:
- EKKÓ kórinn flytur falleg jólalög
- Helgi Árnason, gjaldkeri FKE, flytur jólahugvekju
- Smáréttahlaðborð með ljúffengum veitingum
- Katrín Halldóra Sigurðardóttir – „ELLÝ“ – syngur nokkur vel valin lög við undirleik Hjartar Ingva Jóhannssonar
- Kaffi og terta í lokin
Aðgangseyrir er 4.000 kr. Vinsamlegast athugið að POSA greiðslur eru ekki í boði. Greiða má með reiðufé á staðnum eða með millifærslu á reikning FKE:
- Kt.: 421190–1359
- Banki: 0313–26–004211
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og njóta saman notalegrar og gleðilegrar stundar í aðdraganda jólanna.
Með hlýjum jólakveðjum,
Stjórn FKE
Engin ummæli enn

